Mikið er ég dugleg í myndbirtingum þessa dagana. Nú er komið nýtt albúm af Matdömum og Sushikveldi þeirra.

8. mars 2009 15:42
it´s all so quiet...

Móðirin var að skella inn nýju myndaalbúmi. Þetta eru myndir frá því fyrir áramót. Annars er bara allt djollí að frétta af okkur. Andri fór í sína fyrstu tannlæknaheimsókn, þessa þriggja ára skoðun, og það gekk alveg ótrúlega vel. Honum fannst Benni tannsi svo skemmtilegur að hann ætlaði ekki að vilja yfirgefa svæðið. Leyfði Benna að telja í sér tennurnar - og líka bursta þær með rafknúna tannburstanum. Eitt er víst að hann er ekki með tannlæknafóbíu.

En hér eru þeir félagar Andri og Kolbeinn skúli í froðudiskói:

4. mars 2009 23:46
blesssahhr

Nýjar myndir í okt, nóv albúmi!

18. desember 2008 23:47
it´s all so quiet...

Var að setja septembermyndir í albúm....

 

7. október 2008 00:13
party in da house...

Sjúklega skemmtileg og áhugaverð bloggfærsla:

Þar sem tjellinginn gerir ekkert nema hósta og snýta sér buðust Amma Unnur og Afi Finnbogi að hafa drenginn hjá sér í dag. Hann er búinn að vera á Háaleitisbrautinni í allan dag og það er ekki laust við að ég sé farin að sakna hans dálítið.

Nú er ég að malla grænmetissúpu með óhemjumiklum hvítlauk og allskonar grænmeti og ætla að súpa á þessari vítamínbombu í kvöld.

En kreppan. Fólk flykktist í nýju Korpuverslunarsamsetninguna í dag. Skrýtið.

4. október 2008 19:15
it´s all so quiet...

Getur vont lengi versnað? 

Ég ætla ekki einu sinni að reyna að vera jákvæð yfir ástandinu. Ein sem ég vann með um daginn var svo jákvæð að hún sagði - í fullri alvöru: Kva, þetta er ekkert svo slæmt, ég meina það gæti verið komin plága, svarti dauði eða eitthvað.... Já, lengi getur vont versnað en mér finnst þetta hætt að vera sniðugt. Nýjustu fréttir eru um að olíuskortur gæti orðið á næstu mánuðum. Þá er gaman að eiga jeppa á myntkörfuláni!

En Dr. Gunni er alltaf jafnmikill snillingur. Þetta er svo 2007: 

http://this.is/drgunni/svo2007.html

 

3. október 2008 00:21
it´s all so quiet...

Nýjar myndir frá ágústmánuði í albúmi.

Meðal annarra má sjá þessar þar:

Andri Rafn í Húsdýragarðinum:

Emil með blingbling:

Rifsberjahlaupsgerð á V31:

 

18. september 2008 22:14
it´s all so quiet...

Dramaqueen...

Sonur minn missti kúlið smástund í dag. Fórum í Kringluna með ömmunni og afanum og eftir að hafa dvalið þar á bókasafninu og í búðum í dágóða stund þá fríkaði hann út og grét og gólaði svo ég þurfti að halda á honum frá Hagkaupum út að bókasafni. Það glumdi í Kringlunni.

Atvikið varð vegna þess að í Hagkaupum sá hann nákvæmlega eins náttföt og hann á sjálfur heima, vildi ólmur taka þau með heim og þó ég reyndi að útskýra að búðin ætti þessi en hans væru heima þá tók hann það ekki gilt.

Úff, þetta var ekki hressandi. En hér eru náttfötin sem um ræðir:

21. ágúst 2008 22:22
blesssahhr

Nú er ég komin á facebook. Varð náttúrulega að tékka á hvað væri svona spennandi. Var sumsé að eyða klukkutíma í að gægjast  hvort ég ætti sameiginlega vini með vinum mínum og biðja vini mína að vera vinir mínir á facebook.

Þetta er örugglega sniðugt, kann bara ekki að nota þetta, reyndi að fletta upp á gömlum skólafélögum frá ,high school´ (afskaplega usa-legt viðmót) en fann ekki neinn, hélt kannski að það væri í gangi ,rejúníon´ þar sem það eru að nálgast tuttugu ár síðan ég útskrifaðist úr gaggó, en svo er ei.

21. ágúst 2008 01:15
it´s all so quiet...

Nýjar myndir komnar í albúm. Nú verður maður að vera duglegur að skrifa - sérstaklega fyrir þessa sem eru fluttir til úgglandanna, Emil, Biggi og Soffía eru flutt til Oslóarborgar og Æsa er farin til Kaupmannahafnar. Þau missa nú aldeilis af sápuóperunni endalausu sem á sér stað í Ráðhúsi Reykjavíkur...

Er maður annars frúarlegur eða hvað?

17. ágúst 2008 01:45
blesssahhr

?Borgarmálin enn á ný?

Þetta voru jú mistök en það voru ekki mistök þegar við gerðum þau.... Ha? Eru mistök ekki þegar þau eru gerð? Skil ekki Hönnu Birnu í Kastljósinu þegar hún talar um málefnasamninginn sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði  við Ólaf F.

Er ekki kominn tími til að einhver af þessum bjánum í borgarstjórn segi af sér? Fyrir fullt og allt. Herregud, þvílíkt rugl.

15. ágúst 2008 20:14
it´s all so quiet...

Meðmæli.

Ég á safapressu sem ég nota oft og finnst best að blanda appelsínur/engifer/gulrætur, mæli með því. Í morgun prófaði ég nýja blöndu: gulrætur/engifer/HVÍTLAUKUR. Stór mistök, þetta var vægast sagt viðbjóður en þar sem ég er samviskusöm með eindæmum, og með hálsbólgu, drakk ég glasið í botn og núna andar allur líkaminn frá sér hvítlauk í sjötta veldi. jökk.

Ilmur félagi í hringnum mínum kenndum við tíðir hefur sett á laggirnar stórfínan vef um prjónerí og mæli ég eindregið með honum: www.prjona.net Skoða hann oft og finn að prjónalöngunin er að blosssa upp í mér aftur.

Svo er það Dr. Gunni. Okursíðan hans er frábær og peppar mann upp í að láta ekki alveg taka sig í bakaríið: http://this.is/drgunni/okur.html 

3. júlí 2008 09:52
it´s all so quiet...

Þættinum hafa borist kvartanir um að ekki sé nægilega mikið að gerast á þessari síðu. Þessari gagnrýni er svarað um hæl með NÝJU MYNDAALBÚMI, sko hvað þetta er gagnvirk heimasíða. Að vísu eru það myndir frá því í Maímánuði sem koma núna, júní kemur þá í lok júlí ef ég þekki mig rétt...

24. júní 2008 22:43
it´s all so quiet...

Nýjar myndir komnar í Albúm!

1. maí 2008 22:59
it´s all so quiet...
Nú er búið að taka myglusveppasýni sem sent verður til frekari rannsókna. Ekki fannst líffræðingnum ástandið fagurt. Gæti gargað, gaaarrrrg!
11. apríl 2008 00:03
it´s all so quiet...

Sjokk.

Ég fór í heimsókn í gær til litlu fjölskyldunnar sem býr í kjallaraíbúðinn hér í húsinu. Húsfreyjan þar sýndi mér þá vegginn í svefnherberginu og viti menn, þar gaf á að líta hressan myglusvepp í horninu. Gaman að því.

Ég hef haft ákveðnar grunsemdir upp á síðkastið að myglusveppinn gæti verið að finna hérna, öll þessi veikindi okkar og svona. Astminn hans Andra, lungnabólgan og allar blessuðu pestarnar....

Ég er búin að panta úttekt hjá Sylgju hjá husogheilsa.is og vona að hún komist sem fyrst til að kíkja á þetta - og vonandi er þetta bara meinlausa týpan af myglusvepp sem auðvelt verður að uppræta. Ræræræ.

Ef þið viljið fræðast um þessa skaðræðisóværu þá er hér örstutt heimildarmyndband frá Discovery Channel:

http://dsc.discovery.com/video/player.html?bctid=236097548

7. apríl 2008 22:29
party in da house...

Íþróttameiðsli.

Ég slasaði son minn í dag. Ekkert alvarlegt. Við vorum í okkar vanalega laugardagsíþróttatíma í Hreyfilandi og vorum að hoppa (eins og kengúrur) og ég klóraði hann óvart í framan. Hann er nagli og fór ekkert að gráta, nennti því ekki því honum finnst sjúklega gaman í þessum þrautum öllum. Svo er það skemmtilegasta í heimi að dansa Hókípókí. Að því loknu kallar hann óþreyjufullur: ,,meija ógíkógí, meija ógíkógí!''

Jæja, best að fara að tékka á síðu 444 í textavarpinu. Djók.

5. apríl 2008 21:40
party in da house...

444

Í gær sló sonur minn met. Hann vaknaði, ásamt mér, klukkan hálfellefu! Vanalega er ræs svona á bilinu sjö til níu. Þetta var voða notarlegt og tjilluðum við bara heima þann daginn.

Annars er ég mikil áhugamanneskja um textavarpið og skoða það reglulega. Hvað er málið með síðu 444? Er farin að halda að þetta séu persónuleg skilaboð til mín (vakkó...). Skora á ykkur að skoða þessa dularfullu síðu.

5. apríl 2008 09:29
party in da house...

Varð pirruð á að hlusta á Gest Einar í útvarpinu í dag. Hann var að þusa yfir mótmælum atvinnubílstjóra, sagði að ríkisstjórnin hefði ekkert með þetta að gera, nú væri komið nóg af mótmælum. Fáfræðingur.

Ríkisstjórnin tekur núna yfir sjötíukrónur af hverjum lítra, þegar olíuverð er svo hátt sem í dag finnst mér sjálfsagt að lækka þessa skattlagningu til að koma á móts við bílstjóra í þessu landi.

Þoli ekki þessa hræðslu landans við að mótmæla. Það var góður punkur í mynd Michaels Moore um muninn á Frakklandi og Bandaríkjunum; einhver sagði að í Frakklandi hræddist ríkisstjórnin þegnana og reyndi þess vegna að gera allt fyrir þá en í Bandaríkjunum væri þessu þveröfugt farið. Ég held að svo sé einnig á Íslandi, við hræðumst ríkisstjórnina, í stað þess að gera um það kröfur að hún vinni fyrir okkur og geri okkur lífið auðveldara. Ég meina við erum að borga nógu helv mikið í skatta!

Annars er drengurinn bara heimavið núna, er að fá sér blundinn. Finnst ljúft að gefa honum frí af og til í Leikó, sérstaklega þegar ég er sjálf heima að tjilla.

En í kvöld er bíókvöld, Stóra Planið!

(...minni á nýjar myndir.)

2. apríl 2008 14:34
it´s all so quiet...

Mig langar að tala um hátt bensínverð, glæpabanka og skipulagsmál borgarinnar en ætla að sleppa því. Kem sterk inn með nýtt ALBÚM sem segir meira en þúsund orð, reyndar fylgja því nokkur orð. Verið velkomin að kíkja þangað!

1. apríl 2008 22:31
it´s all so quiet...

Nú verðum við að láta í ljós álit okkar á sápuóperunni í borgarstjórn. Hnífstungustjórnin er komin til valda og mótmæli ég þessu virðingaleysi við borgarbúa hér:

http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html

 

22. janúar 2008 22:54
party in da house...

Ostur og kjóll.

Drengurinn minn er orðinn mjög sjálfbjarga. Fór núna áðan og opnaði ísskápinn, tók lokið af ostaboxinu og sótti sér ostbitann sem þar var að finna, dágott stykki sem hann svo nartaði í fyrir kvöldmat.

Annars fór ég með Ingu í bæinn í dag og keypti mér sjúklega flottan kjól fyrir árshátíðina, þann fyrsta sem ég mátaði, ótrúlegt en satt. Túrkisgrænblár með silfruðu mynstri, glamúr í gegn.

11. janúar 2008 20:31
blesssahhr

Hænuskref á dag útúr myrkrinu.

Nú loksins skrifa ég því í dag var ég dugleg - nenni ekki að skrifa um það þegar ég vakna eldsnemma í myrkri, kem svo heim seint á daginn, í myrkri, slenuð úr flugi, narta í nokkur Tomma og Jenna kex, hef ekki orku í neitt og segi við feðgana að ég ætli að leggja mig í hálftíma, borða úfin og sofna svo þreytt með unganum mínum um níu. Ég ætla semsé ekki að skrifa um svoleiðis daga, hver nennir að sitja undir svoleiðislöguðu?

Nei, stundum er ég nefnilega dugleg, vakna útsofin fyrir sex, kem spræk heim úr vinnunni hálfsex -í myrkri- og skelli mér strax í sund með feðgunum, eins og áðan. Sund er himneskt og Andri er orðinn svo duglegur að sprikla í lauginni með litla kúta á handleggjunum, hann ljómar allur þegar hann er í sundi.

Eftir sundið fórum við fjölskyldan, að Uglu undanskilini, á Næstu Grös og fengum okkur dýrindis mat.

Andri er líka orðinn svo duglegur að sofna einn. Tekur stundum dálitla stund að festa svefn, þá er hann bara eitthvað að brölta í rúminu sínu með litlar bækur eða eitthvað dót. Voða krúttlegt að heyra hann hjala við sjálfan sig og af og til kallar hann: ,pabba´, ,maaama´, ,gaagaa´ (ugla) og ef mikil liggur við kallar hann á pabba sinn: ,Æjar´.

Svo finnst mér gott að dagarnir eru að lengjast um hænuskref á dag.

9. janúar 2008 21:28
party in da house...

Veikindasaga.

Ókei, síðast þegar ég skrifaði var ungi maðurinn búinn að vera veikur í fjóra daga. Ókei. Þetta varð svo pest sem varaði í fjórtán daga, ekki gaman að því. Fórum til barnalæknis og hann sendi okkur upp á barnaspítala, þar voru teknar lungnaröngenmyndir og blóðprufa en ekkert fannst (hjúkket) þannig að úrskurðað var að um slæma veirupest væri að ræða.

Nú er sá stutti orðinn hress og eins og hann á að sér að vera, brosmildur dundari og með þvílíka matarlyst, en þegar pestin var á ferð borðaði hann sama og ekkert og grenntist heil ósköp greyið. Svo var hann svo lítill í sér, vildi helst vera í fanginu eða í gakokka (bakpokanum) að móðirinn fékk þennan líka axlaríg sem hún er laus við núna.

13. desember 2007 20:38
it´s all so quiet...

Nóvember albúmið er komið á myndasíðu!

En nú er Andri litli lasinn og er á fjórða degi í skítapest, hann er voða slappur greyið og vill bara vera í fanginu á mér. Ef þetta hefur ekki lagast á morgun þá förum við til læknis. Litla skinnið mitt! Hilsen, Rósa og Andri lasni.

29. nóvember 2007 13:18
party in da house...

Nýtt albúm er mætt! Októbermánuður.

9. nóvember 2007 01:12
party in da house...

Leikhúsferð með leikó.

Fórum með leikskólanum í rútuferð og leikhús í Norræna húsið um daginn. Andra fannst ógurlega gaman í rútunni en leikritið fór svona fyrir ofan garð og neðan. Þetta var mjög artí uppsetning þar sem blár risafugl var í aðalhlutverki og hljóp um sviðið ásamt lítilli rauðri leikbrúðu, undir þessu hljóðláta og hægfara hlaupi var spilað undir á flautu. Ekki beint Skoppu/Skrítlu stuð. 

Fyrstu tíu mínóturnar sat ungi herrann kyrr en svo fóru næstu tíu mínóturnar í að halda honum í sætinu því þá vildi hann bara vera í því að færa lausa stóla í kringum okkur og kalla BÍBÍ! BÍBÍ! Þegar leikritinu loks lauk eftir heilar tuttugu mínótur verð ég að viðurkenna að ég andaði léttar, sem og sonurinn.

Þegar í leikskólann var komið á ný hitti ég leikskólastýruna sem spurði mig hvernig mér hafi nú fundist. Ég, alltaf hress, svaraði eitthvað á þá leið að mér hafi fundist blái fuglinn svakalegur sem tákngervingur yfirvaldsins... sem var djók! en frúnni stökk ekki bros né heldur foreldri sem stóð þarna hjá. Ég varð vandræðaleg ehehe og reyndi að vera samræðuhæf og sagði að þetta hafi nú verið prýðisskemmtun og flýtti mér með Andra minn út. Alltaf gaman þegar fólk fattar ekki framúrskarandi skopskyn mitt - og heldur að ég sé GAGA...

8. nóvember 2007 11:03
party in da house...

Skemmdaverk geta nú stundum verið dálítið fyndin. Þetta skilti rákumst við Andri á hjá KR vellinum.

6. nóvember 2007 21:22
party in da house...

Fréttir af fólki.

Lífið gengur sinn vanagang hjá Víðimelsfjölskyldunni. Litli anginn plummar sig vel á nýja leikskólanum sínum, er alltaf hress með að mæta á deildina sína. Á morgun förum við í rútuferðalag með öllum krökkunum að sjá leikrit í Norræna húsinu og geri ég ráð fyrir að það verði mikið stuð.

Við erum hægt og rólega að gera upp baðherbergið, búin að plokka flestar flísar af veggjunum en þetta gerist hægt því ekki er í boði að vera að hamra og berja á kvöldin því þá sefur snúllmundur.

Frúin er enn að fljúga á fullu, orðin dálítið lúin og þyrstir í smá vetrar/sumarfrí en það kemur fyrr en síðar. Kannski flýg ég desember en geri ráð fyrir að ég verði varla í janúar - þetta kemur allt í ljós.

Við mæðgin fórum í sund í dag og sá stutti er orðinn ótrúlega klár að ,synda´, núna er hann með handkúta og spriklar stoltur um, alveg aleinn og ég horfi með aðdáun á litla spottorminn minn sem er ekkert ungabarn lengur, heldur kröftugur lítill gaur.

5. nóvember 2007 22:40
party in da house...

Þó að frúin sé löt við skriftir þessa dagana er hún mjög dugleg að setja inn myndir. Nýtt albúm, ÁGÚST + SEPTEMBER komið inn á myndasíðu.....

 

4. október 2007 01:22
party in da house...
Ég vil vekja athygli á því að nýtt albúm er komið í hús... Júní og Júlí 07....
25. september 2007 21:55
blesssahhr

Rubio og starfsferillinn.

Nú hefur Andri Rafn látið af störfum í leikskólanum Sólgarði og hafið störf að leikskólanum Hagaborg. Maður kemur í manns stað á Sólgarði og hefur ungur vinur hans tekið við stöðunni hans þar - er viss um að hann mun sinna starfinu af einurð, gleði og krúttskap. En hann verður á sömu deild og Andri var á -með Grétari og allt!

Nú kynnu einhverjir að huxa ,hmmm, til hvers að skipta um leikskóla?´, jahá en það er vegna þess að Sólgarður er bara fyrir lítil kríli en Hagaborg er fyrir stóra strumpa frá aldrinum eins og hálfs til fimm ára. Þess skal samt látið getið hér að mæðginin voru mjög ánægð með dvölina á Sólgarði og munum koma til með að sakna starfsfólksins þar, sérstaklega Svövu og allrasérstaklega elsku Grétars, en hann var í algjöru uppáhaldi.

Aðlögun Rubio að Hagaborg er formlega lokið í dag og hefur starfið þar gengið vonum framar, ekkert mál, enginn grátur heldur bara leikgleði og sprell. Meira segja lagði hann sig inni ásamt fullt af litlum strumpum og var það ekkert mál, bara steinsvaf einsog hann hefði aldrei gert annað.

Það er víst óþarfi að tíunda það hér en látum það fylgja: móðirin er yfirmáta stolt að syni sínum.

24. ágúst 2007 13:19
party in da house...

Af senor Rubio.

Nú er frúin búin að skella inn Lanzarote myndasafni, aldeilis framtaksemi þessa dagana.

Annars var litli Rubio í 18 mánaða skoðun um daginn og fékk sprautu sem hann grét sárt undan, svo var hann veginn og metinn, nú er hann orðinn 12,5 kg og 87 sm.

Nýjasta orðið í tungumálanáminu hjá honum er klukka (gukka) og uppáhaldsorðið er jæja - hann er mjög meðvitaður hvenær er best að nota það, t.d. þegar hann vill breyta atburðarásinni eitthvað eða þegar honum er farið að leiðast þófið - þá kemur hressilegt JAAAEEEJA.

Svo koma heilu setningarnar en þær hljóma einhvern veginn svona:

Tukkkutukkutukkutukku tuuukkku? Gugga. tukkutukkku tukkkku tu. Téé (tré). JÆÆÆJA.

12. ágúst 2007 01:35
blesssahhr

Það er ALLT að gerast á þessari síðu, skellti inn ,nýju´ albúmi, ehemm, sko maí. Fljótlega kemur svo Lanzarote albúmið - en eitt í einu! Góðir hlutir gerast hægt...

9. ágúst 2007 01:21
it´s all so quiet...

Jæja þá er fjölskyldan komin frá Lanzarote þar sem hún dvaldist í aldeilis góðu yfirlæti.

Frúin er haldin mikilli skrifleti þessa dagana en miklu lestraræði, var að klára Persepolis, Konungsbók, How I became Stupid og er núna að lesa frábæru bókina hans Marks Haddons, Furðulegt háttarlag hunds um nótt. Mæli með þeim öllum.

Reyni að skella inn myndum sem fyrst. Litli karlinn var kallaður Rúbíó af Spánverjunum og nú er það orðið listamannsnafnið hans, El Rúúúúubííóóó.

Hef það á tilfinningunni að skrifletin eigi eftir að standa í dágóða stund - svo hér verður ekki mikið um að vera á næstu vikum. Knúsmúslúsíkrús.

7. júní 2007 11:37
party in da house...

Jæja þá er fjölskyldan komin frá Lanzarote þar sem hún dvaldist í aldeilis góðu yfirlæti.

Frúin er haldin mikilli skrifleti þessa dagana en miklu lestraræði, var að klára Persepolis, Konungsbók, How I became Stupid og er núna að lesa frábæru bókina hans Marks Haddons, Furðulegt háttarlag hunds um nótt. Mæli með þeim öllum.

Reyni að skella inn myndum sem fyrst. Litli karlinn var kallaður Rúbíó af Spánverjunum og nú er það orðið listamannsnafnið hans, El Rúúúúubííóóó.

Hef það á tilfinningunni að skrifletin eigi eftir að standa í dágóða stund - svo hér verður ekki mikið um að vera á næstu vikum. Knúsmúslúsíkrús.

7. júní 2007 11:37
it´s all so quiet...

Frúin fallin!

Ég er haldin fíkn, mér tókst að halda mér frá henni sumarið þegar ég var ólétt og líka í fyrrasumar en þá var kúturinn svo lítill að ég hafði ekki tíma. Nú hefur fíknin læðst að mér aftur: FÍFLADRÁPSFÍKN, ÉG ELSKA AÐ DREPA FÍFLA.

Vegna fjarveru minnar úr garðinum síðustu tvö sumur er garðurinn orðinn eitt fíflabeð. Fífladrápsfíknin lýsir sér þannig að þegar Andri er sofnaður læðist ég út með fífladrápsskófluna mína og tæti upp eins marga fífla og ég get, alveg þangað til maðurinn minn kallar út um gluggann: ,nóg í bili!´

Þetta er ágætishressing og ég mæli eindregið með þessu, skella sér út í garð í hálftíma eða svo á kvöldin og grafa upp nokkra feita fífla, maður fær fína hreyfingu og ferskt loft. En ég vara ykkur við: þetta er ávanabindandi og getur þróast upp í örlitla þráhyggju.

19. maí 2007 23:29
party in da house...

Hvað gerist

þegar fínu garðhúsgögnin eru fúavarin og sett út í garð? Að sjálfsögðu fer að rigna. Annars er rigningin ekki alslæm, hún kom á ágætum tímapunkti því ég var líka var líka nýbúin að bera grasfræ, grasáburð og kalkbæti á blettinn og ætlaði að fara að vökva þegar droparnir byrjuðu að falla. Þetta er gott fyrir gróðurinn. Síðustu setningu er ég æði dugleg að nota yfir sumartímann....

15. maí 2007 22:41
party in da house...

Helgin í sagnorðastíl:

Bjó til rækjubrauðtertu. Synti með syni, Kristjönu, KKjr, Guðrúnu Rósu og tvíburunum sem eru í maganum á Kristjönu. Slappaði af í pottinum.  Vaskaði upp. Sótti Ævar á flugvöllinn. Kaus Samfylkingu. Fór í þrítugsafmæli til Betu. Horfði ekki á Júróvision því ég sofnaði með syni. Vaknaði svo kl. 22 og horfði til 02 á kosningarsjónvarpið. Borðaði ógrynni af Oreo´s súkkulaðihjúpuðu kexi, jökk. Svaf út. Svekkti mig á því að stjórnin hélt velli. Hughreysti mig á því að samt er líklegt að ný stjórn verði mynduð. Fór á hljóðlistasýningu Finnboga Péturssonar ásamt syni, Bryndísi, Helenu og Kolgrími. Sýningin var í Orkuveitunni og eitt verkið fúnkeraði ekki vegna rafmagnsleysis - endurtek: sýningin var í Orkuveitunni?! Borðaði ásamt syni á McDonalds, jómfrúarferðin hans þangað. Lékum okkur í Leikbæ. Heimsóttum mömmu og Finnboga þar sem Andri lék sér við Emil frænda, Bigga og Soffíu. Borðuðum hrygg (já, veit: eftir Makkdó...). Vaskaði upp. Er alltaf að vaska upp. Kannski maður ætti að reyna að koma uppþvottavél fyrir í eldhúsinu?

13. maí 2007 22:18
blesssahhr

Búðardrama.

Jæja, þá er fyrsta stórmarkaðsgrenjikastið afstaðið. Við mæðginin fórum í Bónus og drengurinn skemmti sér vel í innkaupakerrunni, skoðaði allskonar kex- og kaffipakka og skellihló þegar ég glannaðist með kerruna. Þegar við vorum komin að kassanum var hann orðin frekar þreyttur á tilstandinu en tók gleði sína þegar hann spottaði unga jafnöldru sína, einnig í kerru, á næsta kassa.

Þvínæst fórum við í Hagkaup á Eiðistorgi, þar sem framboðsmenn allra flokka húktu fyrir utan að sníkja atkvæði. Í þetta sinn slepptum við innkaupakerru og Andri kom labbandi með mér í búðina. Jamm. Í búðinni vildi hann bara labba fram og til baka í grænmetisdeildinni, aaaftur og aaaftur, þar til móðurinni fór að leiðast þófið og tók í taumana, eða öllu heldur höndina, og dró soninn úr grænmetinu. Þá fékk minn maður þetta litla dramakast, öskraði og grenjaði og lagðist niður í gólf. Ehhee, gaman að því.

Við mjólkurvörudeildina hittum við frábæra leikskólakennarann við verðandi leikskólann hans Andra, Hagaborg, og drengurinn í svona líka rjómaskapi - noooot, og nú heldur hún að drengurinn sé algjör villingur...

11. maí 2007 20:50
it´s all so quiet...

Þegar maður nennir ekki að skrifa sjálfur

er ágætt að mæla með öðrum sem orða hlutina eins og talað úr manns hjarta: pistill Dr. Gunna í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þar talar hann um Rúmenana sem vísað var úr landi.

10. maí 2007 11:31
it´s all so quiet...

Var að panta vikuferð til Lanzarote fyrir okkur Ævar og Andra. Hlakka ógurlega til en kvíði pínu flugferðinni, veit ekki hvort ég fæ unga manninn til að vera kyrran í svo langan tíma. Núna vill hann labba út í eitt, frá morgni til kvölds.

9. maí 2007 22:55
party in da house...

Stórtíðindi.

Drengurinn er farinn að labba SJÁLFUR OG ÓSTUDDUR! Það gerðist um helgina á meðan ég var að fljúga. Pabbinn var í eldhúsinu að fá sér kaffi og hélt að drengurinn væri að leika sér inni í stofu - þeim fyrrnefnda svelgdist á kaffinu þegar ungi maðurinn kom rígmontinn LABBANDI til pabba síns inn í eldhús. Það er ótrúlega fyndið og krúttlegt að sjá þann stutta valsa um á tveimur fótum.

Helgin hjá móðurinni var ekki jafntíðindamikil. Ég var að fljúga báða dagana og sofnaði bæði kvöldin með syninum klukkan hálfníu, vúhaa! Livin´la vida loca...

Er annars búin að sjá það út að þegar ég er að vakna klukkan fimm að morgni og vinna til seytjánhundruð er best að drífa sig bara með syninum í sund eftir vinnuna. Ef ég er bara að hanga með honum heima er ég eins og draugur, en ef við skellum okkur í sundið og pottana er ég öllu hressari. Á morgun ætla ég bara að taka sundfötin með í fluffutöskuna og fara beint í laugina eftir flugið með litla labbakút.

7. maí 2007 22:40
party in da house...

Í kjölfar 1. maí.

Frúin var boðuð á áhugaverðan morgunverðarfund hjá VR í dag. Þetta var fámennur fundur með formanninum og margt rætt: kjaramál, launaviðtöl, launaleynd, ,velferðar´kerfi Íslands -sem stéttarfélögin eru að taka upp á sína arma því ríkisstjórn síðustu ára hefur ekki hysjað upp um sig buxurnar og borgar fólki smánarbætur ef það veikist alvarlega... munið að kjósa rétt.

Mest var þó rætt um orlofshúsin. VR íhugar að kúpla sig útúr þeim bisness því hann þykir ekki borga sig - með hverjum bústað sem félagsmaður borgar kannski 25.000 fyrir vikuna, niðurgreiðir félagið hann um ca. 50.000! Mér finnst þetta fáránlegt því það er ekki nema lítill hluti félagsmanna sem nýtir sér þessa þjónustu. Frekar bara að fá að ráðstafa sínum ferðalögum sjálfur og fá þá VR til að niðurgreiða það: t.d. ef ég færi til, eeee, segjum Lanzarote, þá gæti ég bara komið með nótu fyrir ferðinni og fengið VR til að greiða 40.000 af henni.

Svo er það víst þannig að umgengni á bústuðunum er orðin mjög slæm. Hluti af því vandamáli ku vera að mikið af unglingum er að vinna í verslunum með skólanum og þetta lið er sumt hvert ólgandi af hormónum og er á fullu að hlaupa af sér hornin. Það borgar í VR og á þ.a.l. að sjálfsögðu rétt á bústöðum - sem það svo fer í og heldur brjáluð sukkpartý með tilheyrandi brotnum gluggum og húsgögnum. Við fengum að heyra svaðalegar sögur af slíkum partýum, löggan alltaf að dúkka upp í orlofshúsunum vegna slíkra eee mannfagnaða.

Svo er bannað að vera með hundgrey í orlofshúsum! Meinleysiskvikindi sem slefa mesta lagi aðeins á gólfið (og myndi vera vel þrifið af eigendum...) og gelta kannski örfáu sinnum.

Ég kom því á framfæri að mér fyndist fáránlegt að sjá ofsjónum yfir því að fjölskyldur tækju með sér hund í bústaðina á meðan enginn pældi í sukk-ælu-leggja í rúst-brjóta glugga-kalla á löggu partýum! Ég fékk góðan meðbyr hjá stéttarfélögum mínum og formaðurinn varð íhugull á svip og sagði þetta vissulega sjónarmið og að hann myndi bera rökin á næsta orlofshúsnefndafund.

Ahhh, gott að pústa.

4. maí 2007 22:41
party in da house...

1. maí.

Við Andri gengum í dag kröfugöngu ásamt þjáðum mönnum í þúsund löndum, ömmunni, Soffíu og Emil frænda. Þar sá ég misheppnuðustu auglýsingu síðan Coke Zero.

Fyrirtækið sem framleiðir Tópas var búið að ráða nokkur ungmenni til að bera skilti sem á stóð: ,hærri tópaslífeyrir´, ,afnemum tópastolla´, ,áfram tópas´ o.s.frv. Þessi ungmenni klæddust bolum með myndum af tópas og görguðu auglýsingaslagorð um leið og þau reyndu að dreifa tópaspökkum til fólksins - enginn vildi þiggja slíkt nema græskulaus börnin.

Mikið rosalega finnst mér þetta óviðeigandi og hallærislegt. Algjör óvirðing við þau málefni sem fólk er að ganga fyrir, ohhh, þoli ekki svona heimsku! Mun hér eftir bojkotta Tópas, rétt eins og Zeró hallærið.

1. maí 2007 23:09
party in da house...
Frænka mín var að skrifa svo sorglega færslu ,Hvernig gastu gert mér þetta?', snökt, snökt: http://mydogs.blog.is/blog/mydogs/
30. apríl 2007 21:57
party in da house...

Labbakúturinn. 

Við Andri og Ugla erum búin að vera ein í kotinu um helgina, pabbinn er í New York að spóka sig og kemur í fyrramálið.

Það gerðust bæði undur og stórmerki hér í dag. Undanfarnar vikur hefur Andri verið með þá þráhyggju að labba - en hann vill alltaf hafa mömmuhönd til staðar til að halda í sig, ef ég hef reynt að fá hann til að ganga einan og óstuddan hefur hann mótmælt hressilega (dramaaakast...) og látið sig síga niður á gólf.

Í dag vorum við að labba saman einu sinni sem oftar og ég rétt held í skyrtuna hans, sálrænn stuðningur, og hvet hann áfram: ,vá, hvað þú ert duglegur að labba´ o.s.frv. En í dag var ég útsmogin og ÞÓTTIST halda í hann á meðan ég hvatti hann áfram og hann labbaði EINN OG ÓSTUDDUR alveg helling! Ómæómæ hvað ég varð - ER - montin af litla snúð.

Þá held ég að pabbinn eigi eftir að verða hissa þegar sonurinn tekur á móti honum, labbandi, í fyrramálið!

29. apríl 2007 23:22
party in da house...

Coffie, teee or whatevah...

Veikindaveturinn tekur ekki enda.  

Ég var kölluð út á bakvaktsdögunum mínum og send í næturstopp til Orlando. Þegar ég fer svo að gera mig klára fyrir heimleiðina finn ég að ég er öll eitthvað að slappast, jæja, tek eina asperín og held að málið sé dautt.

Þegar við erum komin um borð fáum við að vita að framundan er sjö tíma flug - svosem ekkert óvanalegt við það. Það er setið í hverju sæti plús tíu ungabörn. Framundan er barþjónusta, svo aftur bar og matur og að lokum er það tollfrjálsi varningurinn í Saga Boutique. Og ég er orðin veik, ýkt slöpp og með massabeinverki. Það þarf víst ekki að útskýra hvers vegna maður hættir ekki fyrr og fer heim að leggja sig í þessari vinnu...

Jæja, ég gleypti verkjalyf alla ferðina og ég get sagt ykkur að ferðin var löng og strembin. Held ég hafi sjaldan verið eins glöð að sjá rúmið mitt þegar ég kom heim á þriðjudagsmorgun. Enda svaf ég í sólarhring eða svo. Er orðin góð núna.

Á meðan ég var úti veiktist drengurinn minn, pabbinn fór með hann til læknis sem komst að því að snúðurinn er með væga sýkingu í eyrum, augum og öndunarfærum. Og vegna þessa er hann kominn á sinn fyrsta sýklalyfskúr. Honum finnst meðalið gott og við eigum í engum vandræðum með að koma því oní hann, en hann fær fimm millilítra sem við sogum upp í sprautu og sprautum í munninn á honum í nokkrum skömmtum, tvisvar á dag.

Ég fór á doktor-punktur-is og rændi þaðan upplýsingum um lyfið, fyrir mig og áhugasama:

Flemoxin Flemoxin Solutab
Flemoxin
			Flemoxin Solutab 
Flokkur Innihaldsefni Framleiðandi
Sýklalyf Amoxicillín. Yamanouchi Europe

Flokkunarnúmer: J 01

Lyfjaform: Flemoxin: Dropar: 100 mg í hverjum ml. Mixtúruduft: 1 ml af fullbúnu lyfinu inniheldur 25 mg eða 50 mg. Flemoxin Solutab: Lausnartöflur: 125 mg, 250 mg, 375 mg, 500 mg eða 750 mg.

Notkun: Flemoxin er sýklalyf af flokki lyfja sem nefnast penicillínlyf. Lyfið er notað gegn sýkingum t.d. í öndunarvegi eða þvagfærum og einnig gegn lekanda. Flemoxin er breiðvirkt sýklalyf, þ.e.a.s. það hefur áhrif á margar tegundir sýkla, en virkar þó ekki á allar sýkingar. Lyfið drepur sýklana með því að koma í veg fyrir að þeir myndi nýja frumuveggi. Þegar lyfið er notað gegn lekanda er algengt að nota með því lyfið Probenecid sem eykur blóðþéttni og verkun lyfsins.

Skammtar: Skammtar fara eftir þyngd sjúklingsins og eðli sýkingarinnar. Mikilvægt er að deila skammtinum jafnt yfir sólarhringinn. Nauðsynlegt er að ljúka öllum skammtinum samkvæmt fyrirmælum, til að koma í veg fyrir að sýking taki sig upp aftur. Flemoxin á að taka með máltíðum eða glasi af vökva. Dropana og mixtúruna á að hrista vel fyrir notkun. Töflurnar (Flemoxin Solutab) má leysa upp í vatni og drekka, en einnig má gleypa þær. Venjulegur dagsskammtur handa börnum er 25-50 mg fyrir hvert kíló líkamsþyngdar, gefið í þremur til fjórum skömmtum. Venjulegur skammtur fyrir fullorðna er 750-2000 mg á sólarhring, gefið í tveimur til fjórum jöfnum skömmtum. Við lekanda: 2 g, gefið í einum skammti, 1/2-1 klst. eftir að teknar hafa verið 4 töflur (1 g) af lyfinu Probenecid.

Aukaverkanir: Dæmi eru um útbrot og annað ofnæmi, t.d. hita. Ef slík einkenni koma fram við töku Flemoxins á að hætta töku þess og hafa samband við lækni. Flemoxin hefur áhrif á eðlilegan sýklagróður í maga og þörmum og því getur það valdið smá magaóþægindum og linum hægðum. Óþægindi þessi má minnka með því að borða jógúrt eða súrmjólk nokkrum sinnum á dag. Ef vart verður við blóðugar hægðir eða mikinn niðurgang á að ráðfæra sig við lækni.

Athugið: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir penicillínlyfjum eiga ekki að taka Flemoxin. Einnig er þeim sem hafa skerta nýrnastarfsemi ráðlagt að segja lækni af því, áður en lyfið er tekið. Sum lyf hafa áhrif á verkun Flemoxins, t.d. lyf sem notuð eru við þvagsýrugigt en þau auka líkur á útbrotum (sjá "Flokkun lyfja eftir verkun": M 04).

Meðganga og brjóstagjöf: Ekki hefur verið sýnt fram á að lyfið hafi nein skaðleg áhrif á fóstur. Lyfið skilst út í móðurmjólk, en áhrif þess á barnið eru líklega óveruleg. Þó er rétt að ráðfæra sig við lækni ef lyfið er notað að einhverju ráði meðan barn er á brjósti.

Samheitalyf: Clamoxyl.

Afgreiðsla: Dropar: 20 ml í glasi með dropateljara. Mixtúruduft: 100 ml í glasi. Lausnaröflur 125 mg, 250 mg, 500 mg og 750 mg: 14 eða 20 töflur í þynnupakkningu. Lausnaröflur 375 mg: 20 töflur í þynnupakkningu. Dropana og mixtúruna á að geyma í ísskáp eða á köldum stað. Eftir að vatni hefur verið blandað í dropana eða mixtúruduftið er lyfið nothæft í tvær vikur.

26. apríl 2007 20:40
party in da house...

Þættinum hefur verið bent á að aprílmánuður tekur senn enda og enn er ekki komið marsalbúm. Að sjálfsögðu bregst þáttastjórnandi skjótt við slíkum ábendingum og skellir inn mars-apríl albúmi.

25. apríl 2007 22:57
party in da house...

Maður á ekki að vera að segja frá þessu.

Ég keypti konfektkassa handa Mávahlíðagenginu, svo voru þau ekki heima þegar ég ætlaði að færa þeim hann. Hvað ætli ég hafi þá gert? Nú étið allt konfektið sjálf! Það er engin sjálfstjórn í gangi hjá frúnni þegar sætuefni djöfulsins er í augnsýn. Eeee, sorrý Inga, kaupi nýjan seinna...

18. apríl 2007 18:01
party in da house...



mars '09 | desember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06